GÓÐ RÁÐ
Pála er hárgreiðslukona hjá okkur á Salon VEH í Reykjavík.
Hún hefur gaman af öllu sem tengist hári og sækir innblástur úr tískublöðum,
umhverfinu og allstaðar sem hún sér eithvað sniðugt.
Pála skrifar stundum inn á Pjattrófu blogginu sem er
eitt flottasta tísku og lífstílsblogg landsins.
"Hárið mitt skiptir mig miklu máli þannig að ég vil nota bestu hárvörur sem völ er á"
Ég hef prófað margar vörur í gegnum tíðna og verið misánægð með þær.
Til að hafa hárið fallegt þarf alltaf að nota einhverjar mótunarvörur.
Nema þú sért svo heppin að geta sleppt þeim en ég tilheyri því miður ekki þeim hópi.
Hér eru nokkrar af mínum eftirlætis hárvörum:
Real Control Sjampó og næring frá REDKEN – er algjört dúndur fyrir mig.
Þessi lína er fyrir úfið, skemmt og viðkvæmt hár.
Inniheldur Shea butter sem róar niður úfið hár,
verndar viðkvæmt hár og gerir við skemmt hár.
Og góða lyktin gerir bara gott betra!
All soft Argan-6 frá Redken- er nýjasta snilldinn frá Redken!
Ég er hreinlega búin að bíða eftir þessari vöru, þessi olía mýkir,
nærir og gerir við þurra og úfna enda og gefur því flottan glans.
Allt sem maður óskar sér er nú í einni vöru! Ég elska þessa olíu!
Tangle teezer- það er ekkert betra en að ná flóka úr hárinu án þess að finna fyrir því að maður er að bursta á sér hárið!
Ó já, þessi bursti er frábær, sérstaklega hannaður fyrir svona hársárar píur eins og MIG!
En ég þarft ekki kveljast meir eftir að ég fann þennan bursta…Tær snilld!
UM SALON VEH
Hárgreiðslustofan Salon VEH í Húsi verslunarinnar hefur haft það markmið frá upphafi að vera fremst í sínu sviði.
Salon VEH hefur um árabil kynnt bæði vor/sumarlínu og vetrarlínu.
Einnig fara starfsmenn stofunnar reglulega til útlanda til að kynna sér það nýjasta í hártísku víðs vegar um heiminn.
Við njótum þess að vera best á okkar sviði, fylgjumst vel með nýjungum og erum alltaf tilbúin að fullnægja þörfum viðskiptavina okkar.
Hárgreiðslustofan Salon VEH var stofnuð árið 1971 af Elsu Haraldsdóttur og var fyrst til húsa í Glæsibæ.
Salon VEH hefur því vissa sérstöðu hérlendis enda fáar hárgreiðslustofur sem geta státað af rúmlega þrjátíu ára sögu.
Salon VEH var opnuð í Húsi verslunarinnar um miðjan níunda áratuginn og styrkir þá enn stöðu sína á íslenskum markaði.
Um tíma var Salon VEH einnig á Laugaveginum.
Elsa var nýkomin úr framhaldsnámi í Austurríki og Þýskalandi þegar hún stofnaði Salon VEH og hefur því viss alþjóðlegur blær fylgt stofunni allt frá upphafi.
Það er ekki síst vegna tengsla stofunnar við stefnur og strauma erlendis að Salon VEH hefur verið leiðandi á íslenskum markaði frá upphafi.
2006 Entrepreneurial Excellence: Salon Leadership
Salon VEH - Eigandi: Elsa Haraldsdottir
2004 Excellence Award for Entrepreneurial Spirit
Umsögn dómara um Elsu:
"Owner Elsa Haraldsdottir received top honours in this category, epitomising the qualities and characteristics of an entrepreneur; namely, the way she thinks as a business woman."


