loft_pictures

Main Menu

UM SALON VEH

 

Hárgreiðslustofan Salon VEH í Húsi verslunarinnar hefur haft það markmið frá upphafi að vera fremst í sínu sviði. 
Salon VEH hefur um árabil kynnt bæði vor/sumarlínu og vetrarlínu. 
Einnig fara starfsmenn stofunnar reglulega til útlanda til að kynna sér það nýjasta í hártísku víðs vegar um heiminn.

Við njótum þess að vera best á okkar sviði, fylgjumst vel með nýjungum og erum alltaf tilbúin að fullnægja þörfum viðskiptavina okkar.
Hárgreiðslustofan Salon VEH var stofnuð árið 1971 af Elsu Haraldsdóttur og var fyrst til húsa í Glæsibæ. 

Salon VEH hefur því vissa sérstöðu hérlendis enda fáar hárgreiðslustofur sem geta státað af rúmlega þrjátíu ára sögu.
Salon VEH var opnuð í Húsi verslunarinnar um miðjan níunda áratuginn og styrkir þá enn stöðu sína á íslenskum markaði.
Um tíma var Salon VEH einnig á Laugaveginum.

Elsa var nýkomin úr framhaldsnámi í Austurríki og Þýskalandi þegar hún stofnaði Salon VEH og hefur því viss alþjóðlegur blær fylgt stofunni allt frá upphafi. 
Það er ekki síst vegna tengsla stofunnar við stefnur og strauma erlendis að Salon VEH hefur verið leiðandi á íslenskum markaði frá upphafi.

 


2006 Entrepreneurial Excellence: Salon Leadership
Salon VEH - Eigandi: Elsa Haraldsdottir

2004 Excellence Award for Entrepreneurial Spirit
Umsögn dómara um Elsu:
"Owner Elsa Haraldsdottir received top honours in this category, epitomising the qualities and characteristics of an entrepreneur; namely, the way she thinks as a business woman."

 

hidden